2 próf og keppni í næstu viku..Bjarney, Þórunn og Rakel

Hæhæ allir ;)

Ég ákvað að skella inn smá fréttum af mér.. Svona til að halda síðunni gangandi ;)  

Síðustu 4 daga hef ég verið gersamlega á fullu frá morgni til kvölds.. Ég er að fara í próf í Tímabilaförðun á Þriðjudaginn, Keppa í Smáralindinni á Fimmtudaginn og próf í Smoky á Föstudaginn auk þess sem ég á að skila möppunni minni þá og síðustu 4 daga hef ég verið eins og vitleysingur að reyna að klára möppuna.. ég á svona 2-3 tíma í vinnu eftir af því.. 

Enn annars er nú ekki mikið að frétta af mér.. Emilía og Óttar svo skólinn..! ;) Ég er að reyna að finna mér vinnu fyrir vestan fyrir sumarið því að ég á að byrja að vinna eftir mánuð.. Tíminn líður svo hratt!! Emilía er orðinn 5 mánaða í dag og það er komið ár síðan að Bjarni afi dó ;( Mér finnst eins og hann hafi dáið fyrir kannski hálfu ári..

Enn jæja.. ég ætla að fara að hvíla mig.. langir dagar framundan og ég svaf bara í 4 tíma í gærnótt..

Endilega kíkið á Makeupbybjarney.bloggar.is til að fylgjast með förðununum mínum og svo fá fréttir af mér í bandi við það ;) ;) Og inná emiliaran.barnaland.is til að fylgjast með henni ;) 

Bæbæ í bili ;**

Hvað er í gangi??Bjarney, Þórunn og Rakel

Hæhæ allir ;)

Jæja það er bara ALDREI bloggað né neitt gert á þessari síðu :S Ekki nógu gott... Reyndar þá er allt í fokki hjá bloggar.is held ég... þeir bara ætla að taka 10 ár í að opna fyrir myndaaðganinn okkar svo að við getum sett inn myndir.. :S Ekki nógu góð þjónusta...

Enn annars þa er allt fínt að frétta af okkur vinkonunum.. Ég alltaf á fullu í að vera mamma og í skólanum, Rakel á fullu í skólanum sinum og Þórunn alltaf að vinna... Svaka stuð á okkur skvísunum... 

Jííííj hvað mer hlakkar til að flytja vestur í sumar.. Einn og halfur mánuður þangað til.. Ekki það að það er mjög fínt að vera hjá Pabba og Hjöddu bara það að það er altaf best að vera fyrir vestan :) Líka flest allar vinkonur mínar búa þar... 

Talandi um vinkonur.. þá er hún Erla Laufey búin að eiga eins og náttla ALLIR vita.. Hún átti litla sæta stelpu 12 mars...

Enn jæja.. Núna ætla ég að fara að sofa :) Ég ákvað bara að skella inn smá bloggi hérna.. Ekki það að ég held að það séu ekki margir sem að skoða þessa síðu þessa dagana...

P.S. ENDILEGA KÍKIÐ Á MAKEUPBYBJARNEY.BLOGGAR.IS

Ef ykkur vantar förðun þá vitið þið númerið mitt ;)

Bæbæ í bili ;*

Blogg By BjarneyBjarney, Þórunn og Rakel

Hæhæ allir ;)

Jæja.. ég held að það sé löngu komin tími á nýtt blogg :) Það er svosem ekkert rosalega mikið að frétta eins og er.. Ég er á fullu í skólanum og gengur ótrúlega vel :) Emilía Rán stækkar bara og stækkar og er farin að segja mamma :D :D ÓTRÚLEGA sætt :) Fleiri fréttir af henni á heimasíðunni hennar..

Annars er nú mest lítið búið að ské hjá okkur á skaganum.. Óttar er alltaf svo duglegur að vinna og við hittumst alltaf bara í hádeginu og á kvöldin því ég er i skólanum frá Mánudegi til Fimmtudags.. Svo höfum við fjölskyldan það bara kósý saman á helgum :)

En talandi um helgi.. Við komum vestur næstu helgi :D :D Við erum klikk spennt !!! :D Eins og flest allir vita þá er Fertugs afmælið hjá Eggert og Helen í Röstinni og ætlum við að skella okkur ;) Tengdó ætla að passa og þau eru geggjað spennt :) enn ég ætla ekki drekka þó svo að það sé frítt bús..

Hinsvegar ar ég að spá í að plana smá stelpukvöld í Mars :) ég á samt eftir að tala við vinkonur mínar og athuga hvort að þær séu ekki game ;) Enn ég hafði hugsað mér svona EKTA stelpukvöld með smá kokteilum og skemmtileg heit :D þá ætla ég drekka í fyrsta skipti eftir að ég varð ólétt og átti Emilíu okkar :D Hún verður þá náttla orðin allavega 4 og hálfs mánaðar :D enn þetta á allt efti að koma í ljós :) Enn jiii hvað ég er orðin spennt :D

Enn allavega.. komið nóg af þessu blaðri í mér :) ég setti inn nýja könnun og endilega takið þátt ;)

Ég er búin að stofna make up síðu,  makeupbybjarney.bloggar.is og líka myspace og endilega tékkið á þeim :) Ég set inn linkanna hér fyrir neðan í tengla.

Enn allavega.. Endilega kvittið í gestó og kommentið ;)

Bjarney Deluxe is out ;)

heath Ledger Rest in peaceBjarney, Þórunn og Rakel

vá eru þið ekki að grínast hann er virkilega farinn..Gráta
það er mjög leiðinlegt og sorglegt vitandi það að við munum ekki sjá hann í fleirri myndum en þeim sem hann hefur leikið í..!

            Gráta við áhorfendur eigum eftir að sakna þín Gráta

                                 SaklausHvíldu í friðiSaklaus
                                   Gráta      Koss      Gráta

Heath Ledger var ein af skærustu ungu stjörnum Hollywood, og átti að baki fjölda vel metinna kvikmynda. Hann þótti jafnvígur á dramatík og gamanmyndir, var talinn líklegur til frekari afreka á kvikmyndasviðinu. Dauði hans

Ledger skaust upp á stjörnuhimininn fyrir um þremur árum síðan þegar hann lék annað aðalhlutverkanna í Brokeback Mountain. Þar lék hann hinn illa máli farna vinnumann Ennis, sem átti í ástarsambandi við kúreka, leikinn af Jake Gyllenhaal. Hann hlaut tilnefningar til Golden Globe, Bafta og
Óskarsverðlauna fyrir hlutverkið.

Brokeback Mountain kom Heath rækilega á kortið í Hollywood, og hlaut hann hvert tilboðið á fætur öðru um að leika í stórmyndum. Þegar hann lést hafði Heath nýlokið við Batman myndina „The Dark Knight", þar sem hann lék Jókerinn. Þá er nýútkomin myndin I'm Not There, þar sem Heath var einn sex leikara sem léku Bob Dylan á mismunandi tímabilum ævi sinnar.

Eins og margir ástralskir leikarar sleit Heath barnsskónum í sápuóperum, en hann lék í Home and Away árið 1997. Fyrsta hlutverk hans í Hollywood var hinsvegar í unglingamyndinni 10 Things I Hate About You.

Heath kynntist barnsmóður sinni, Michelle Williams, við tökur á Brokeback Mountain. Þau eignuðust dótturina Matildu Rose árið 2005, en slitu samvistir seint á síðasta ári.

Ráðskona Heath fann hann látinn í rúmi sínu í gærdag. Hann þjáðist af lungnabólgu þegar hann lést. Fyrstu fregnir af andláti hans hermdu að hann hefði verið þunglyndur og mögulega framið sjálfsmorð, en opið lyfjaglas náttborðinu við hlið hans. Foreldrar hans og systir fréttu af andláti hans í útvarpsfréttum. Þau sendu frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem þau segja af og frá að hann hafi framið sjálfsmorð. Hann hafi verið lífsglaður og ekki sú manngerð sem tæki eigið líf.

Þórunn delux

bara smá bloggBjarney, Þórunn og Rakel

jæja núna er gamlársdagur og eg er heima hjá óla, bara eikkað að djílla bíða ettir mattnum.
eg ætlai bara aðeins blogga smá

uhhm hann bubbi teingdó á afmæli í dag til hamingju með þa

jæja það er ekki meira að sinni er fara að borða.....!


gleðilega jól og nýtt ár

Þórunn delux is out

Nýtt ár að ganga í garð..Bjarney, Þórunn og Rakel

Hæhæ allir ;)

Jæja.. ætli þetta sé ekki seinasta bloggið sem verður sett inná þessa síðu á þessu ári..! Býst ekki við því blogga aftur á morgun.. og efast um að Rakel og Þórunn geri það, enn þó.. 2 Sólahringar til stefnu stelpur ;) ;)

Jiii hvað þetta voru kósý jól eitthvað :) Bara slakað á með Emilíu, Óttari og fjölskyldunni okkar, borðað góðan mat og sælgæti og glápt á sjónvarpið :) Gæti ekki gerst betra ;) Og já.. við fengum jólasnjóinn eftir öll þessi ár :) Ég hef biðið LENGI eftir honum :)

Við fengum allveg heilan helling í jólagjöf og ég nenni ekki að telja það hérna upp.. kíkið bara á síðuna hennar Emilíu Ránar og þá getið þið séð það þar í blogginu sem ég skrifaði um daginn :) Þ.e.a.s. ef þið hafið áhuga á að vita það ;) Enn eitt get ég þó sagt ykkur að þetta voru ábyggilega í kringum 100 gjafir.. Vorum í tæpa 4 tíma að opna þá :) Og þið getið rétt ýmindað ykkur hver átti flesta pakkana :)

Jæja.. við erum lent á Akranesinu :) Og núna erum við komin til að vera ;) óttar er að byrja að vinna í janúar :) sennilega hjá Rafvirkja sem að pabbi þekkir :) Enn hann á eftir að spjalla betur við hann.. Annars er nóg að gera hérna.. Okkur líkar bara ágætlega hérna ;) 

Ég spjallaði við hana Björg því að hún er búin að vera með hana Telmu Rut í ungbarnasundi og mér langar svo að fara með Emilíu Rán í Ungbarnasund og það byrjar 13 janúar :) Ég ætla að tékka á því hvað ljósan segir um það þegar ég fer með Emilíu Rán næst í skoðun :)

Tanja systir á afmæli í dag :) Hún er orðin 16 ára skvísa ;) Til hamingju með það elsku dúllan mín ;* ;* LOVE YOU ;* og í tilefni að því þá ætla ég að "syngja" afmælis söngin fyrir hana ;)

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Tanja mín
Hún á afmæi í dag ;* ;*

Enn jæja.. Nú ætla ég að hætta þessu blaðri ;) ENDILEGA KVITTIÐ Í GESTÓ OG KOMMENTIÐ ;) ;)

Bæbæ í bili ;**

P.S. KOMIN NÝ KÖNNUN ;) og einnig nokkrar nýjar myndir ;)

Bjarney Deluxe is out ;**




7 dagar til Jóla :DBjarney, Þórunn og Rakel

Hola me amigos ;P

Jæja ég held að það sé komin smá tími á blogg hjá mér :) Soldið síðan seinast..

Eins og þið öll sjáið þá breytti Þórunn útlitinu á síðunni ;P Flott enn maður þarf að venjast því ;P Það var reyndar kominn tími á smá breytingu hér á bæ :)

Uhh ég hef allveg HELLING að segja :) Þann 9 Des skírðum við litlu dúlluna okkar eins og flest allir vita ;P Hún fékk það fallega nafn Emilía Rán ;** Það var bara æðislegur dagur ;)

Emilía Rán er bara ÆÐISLEG :) Hún stækkar og stækkar og er farin að færa sig í svefni :) Alltaf að hlæja og hjala :) Enn ég endilega "stay tuned" á litlabumban.bloggar.is

VIð óttar eigum eftir að kaupa örfáar jólagjafir.. Hann handa mér, ég handa honum, við handa Emilíu Rán, Emilía Rán handa mér og honum og svo náttla fær hún pakka frá jólasveininum ;) Og það er aldrei að vita nema hann feli pakka undir jólatrénu handa mér og óttari líka ;p

Á morgun erum við Óttar að fara að gera jólahreingerninguna í herberginu hans :) Taka ALLT í gegn!! :) Líka komin tími á að henda upp jólseríunni í herbergisgluggan ;P

Enn núna ætla ég að segja þetta gott í bili ;)

Vonandi förum við stelpurnar að hittast og taka myndir og svona til að setja herna inn :)

Bjarney Deluxe is out ;*

það er svo stutt í JólinnBjarney, Þórunn og Rakel

hæ hæ allir....!

vonandi er ykkur sama þótt ég breytti síðunni soldið mikið ég bara hafði ekkert að gera stelpur..!
það líka vantaði nýja stíl á hana, ea það finnst mér allaena .. bara eitt vandamál myndin
er soldið mikið stór Fýldur ef þið getið laga það þá endilega reyna það :)



jæja svo er bara litla gullið komin með mjög fallegt nafn, hún fékk nafnið Emilía Rán. til hamingju með
það Emilía, Bjarney og Óttar.! Koss oh hvað það var gott að fá smá kökur áðan það er svo langt langt síðan að marh fékk kökur og þá góðar kökur....!


það er nú ekkert svo merkilegt að gerast í lífi mínu núna nema að mér er farið að
hlakka ekkert smá mikið til jólanna. ég get valla beðið.
allt þetta jólaskraut og já svo nátturulega eru jólainnkaupin í
gangi núna og pakka því inn, vá eru þið að grínast hvað mig hlakkar geggjað til jóla, það sem mig hlakkar
svo til um jólin er JÓLAMATUR og að opna PAKKKKKKKAAA ,Hlæjandi en samt mest til jólamatsins.
jú svo líka það að Óli minn verður hjá okkur um jólinn og ég verð reyndar hjá honum um áramótin, við erum búin að ákveða það að fara að skipta þessu niður, þannig að ég verð næst hjá honum um jólin og hann hjá mér um áramótin..!


jæja en nóg í bili núna ég er komin með svo mikin náladofa í löppina að sita sonna stíf
við tölvuna lengi í einu...!


Þórunn deluxe Saklaus

ps: enn og aftur til hamingju með nafnið Emilía Rán. 1000 kossar og knús

Jóla hvað..? ;)Bjarney, Þórunn og Rakel

Hæhæ allir :)

Jæja.. er ekki komin tími á að skella inn nýju bloggi..? Ég held það nú bara.. Það hefur ekki verið bloggað hérna í 3 vikur og það er nú ekki nógu gott.. Og seinasta manneskjan sem að bloggaði var ég :) Reyndar myndi ég vera MIKIÐ duglegari að blogga hérna ef að það væri einhverjir að lesa það sem ég hef að segja og kommenta ;P En svo er nú ekki og ég reyni að skella inn bloggi hérna á nokkura vikna fresti aðeins til að halda síðunni á lífi :)En nóg um það..

29 dagar til jóla og jiiiii hvað ég er orðin spennt :D Fyrstu jólin okkar Óttars saman og með litlu dúlluna okkar sem er sætust í heimi geimi :) Þetta verða bara skemmtileg jól :D Við fórum í verslunarferð á Fimmtudaginn og kláruðum að kaupa allar jólagjafirnar og það voru jú allveg helling af pökkum.. eitthvað í kringum 30 stykki.. En það er ROSALEGA gaman að pakka þessu öllu inn :D :D ég er búin að vera að pakka inn pökkum í dag og í gær.. En er samt ekki búin :) Ætla að reyna að klára það á morgun  svo að ég geti byrjað að dunda mér við jólahreingerninguna ;)

Litla dúllan okkar stækkar og stækkar svo hratt..! Hún verður mánaðargömul næsta Þriðjudag :) 3 vikna og 5 daga gömul núna :) Hún er svo dugleg :) Hún brosir og brosir og drekkur og drekku og er bara yndislega og það er bara BEST í heimi a eiga lítið barn :) Ég myndi ganga í gegnum meðgöngu, fæðingu og allt 10 sinnum í viðbót bara til að eiga fleiri lítil krútt :) Enn ekki allveg strax samt ;) Við ætlum að einbeita okkur að þessari dúllu og sjá til þess að hún fái alla þá athygli sem hún þarf að fá áður en við ákveðum að búa til fleiri börn :) Og jújú, við ætlum líka að klára námið okkar og kaupa okkur hús og annað áður.. Ætlum ekki að búa inná foreldrum okkar með 2 börn eða leigja litla skólaíbúð og eitthvað.. 

Þann 9 Desember verður litlu dúllunni okkar gefið nafn :) Jii ég er svo spennt.. mér langar svo að geta byrjað að kalla hana nafinu sem við erum búin að ákveða að gefa henni :) Og ég veit að það eru allir orðnir rosa spenntir að fá að vita nafnið hennar :) Svo er næsta ungbarnaskoðun 3 Des og okkur hlakkar líka rosalega til að fara með hana í skoðun og fá að vita hversu þung og stór hún sé orðin :) Hún var 4550 grömm síðasta Þriðjudag.. Þyngdist um hálft kíló á 12 dögum :) En endilega kíkið á litlabumban.bloggar.is til að fylgast betur með henni :) Ég blogga þar reglulega :)

Enn allavega ég ætlaði bara svona aðeins að skella inn nokkrum orðum :) Litla dúllan er að vakna og ég ætla að gefa henni að drekka :) Blogga meira seinna og já.. það væri gaman að fá komment "Every now and then" ;) Eða kvitt í gestabókina :)

Bjarney Deluxe is out ;*

Litla prinsessan loksins komin í heiminn :)Bjarney, Þórunn og Rakel

Góða kvöldið allir :)

Eins og flest allir vita þá eignuðumst við Óttar litla prinsessu þann 30 Október klukkan 12:45 ;) ;* ;* :) 

Hún var rúmlega 16 merkur (4035 grömm) og 55 cm :) Hún er allgjör gullmoli og við elskum hana mest í heimigeimi ;* ;´

Henni heilsast rosalega vel og okkur líka :) Fæðingin gekk líka bara vel.. Nákvæmlega núna er hún að lúlla sér í rúminu sínu :) :) Hún er allgjört óskabarn ;)

Enn vildi bara setja inn smá færslu hérna :) Annars er barnalandsíðan í vinnnslu enn litlabumban.bloggar.is er virk :) þar er hægt að fá fleiri fréttir að krílinu ;*

Bæbæ í bili ;*

Bjarney Deluxe is out ;*

Prófíll

  • Nafn: Bjarney, Þórunn og Rakel
  • Staður: Snæfellsbær-Akranes-Rvk
  • Atvinna: Ýmislegt
  • Hjúskaparstaða: Allar á pikkföstu ;)
  • Um mig: Við erum æskuvinkonur sem höfum gaman af lífinu :)
  • Annað: GirlsDeluxe Rokka ;*

Auglýsing

Könnun

Hvar býrðu??

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...